Danstímar í Hveragerði, föstudagskvöldið 7. maí
Þrír danstímar í Fitness bilinu, föstudagskvöldið 7. maí
18:30: Magadans
19:40 Beyoncé - ÖRFÁ PLÁSS LAUS
20:50 Burlesque
Einn tími kostar 3000, tveir tímar kosta 5500 og þrír tímar kosta 6500.
Þú skráir þig í gegnum formið hér að neðan og ég hef svo samband innan sólarhrings. Nánar um dansstílana er að finna neðar á síðunni. Allir tímar miða að byrjendum en eru þannig að fólk með reynslu hefur mjög gaman að þeim.
Athugið að tímarnir henta konum með barn undir belti, ef þær eru ekki með grindargliðnun og eru almennt hraustar.
Síðasti séns til að skrá sig er á miðnætti 6. maí, daginn áður en námskeiðið hefst. Ég minni þó á að það er takmarkað pláss í tímana svo ég hvet ykkur til að skrá ykkur sem fyrst til að missa ekki af plássi.

UM MARGRÉTI
Margrét hefur starfað sem danskennari í 17 ár í Kramhúsinu og er einn vinsælasti kennari hússins. Jákvæð sjálfsmynd og líkamsvirðing eru höfð að leiðarljósi í tímunum þar sem geðrækt er ekki síður mikilvæg en líkamsrækt.
Margrét hlaut Íslensku dansverðlaunin 2014 sem besti danskennarinn. Hún er skemmtilegur kennari sem útskýrir á aðgengilegan hátt og sérhæfir sig í að kenna byrjendum og fólki sem hefur aldrei dansað áður. Hún var sérstakur danskennari þýska handboltalandsliðs karla í upptakti Evrópumeistaramótsins í handbolta 2016. Árið 2018 var hún í danskórnum í Rocky Horror í Borgarleikhúsinu. Margrét hefur farið í fjölda sýningarferðalaga sem burlesquedansmær um Evrópu og Bandaríkin og er fastaskemmtikraftur á hinum goðsagnakennda kabarettstað The Slipper Room í New York.

18:30
MAGADANS
Dansinn úr austrinu þar sem dulúð og mjaðmahnykkjum er blandað saman í ljúfan kokkteil sem styrkir bak og maga. Magadans er aldagamall dans þar sem kvenlíkaminn nýtur sín og unnið er með hvern og einn líkama. Margrét sjálf byrjaði í magadansi vegna bakverkja og opnaði hann fyrir henni heim sjálfsástar og líkamsvirðingar. Í tímanum förum við sttt yfir sögu dansins, förum í grunnspor og lærum stuttan dans.
Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Berfættar. Margrét kemur með peningabelti til að binda um mjaðmir... og nei, það þarf ekki að sýna magann frekar en hver og ein vill.
Lengd tíma: 60 mínútur

20:50
BURLESQUE
Burlesque er kynþokkafullur kabarettdans sem gengið hefur í endurnýjun lífdaga síðastliðin ár og er Margret frumkvöðull formsins á Íslandi. Gott fyrir sjálfstraustið og líkamann og frelsandi fyrir sálina. Hleyptu þinni innri dívu út í vernduðu umhverfi. Örsnöggt farið yfir sögu burlesquesins, upphitun, grunnspor og dans við lagið Why don't you do Right? með Julie London.
Námskeiðið er ætlað konum yfir 18 ára.
Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar, dansskór sem fara vel með gólf eða berfættar.
Lengd tíma: 70 mín

SÓTTVARNIR
OG RÁÐSTAFANIR VEGNA COVID-19
Grímuskylda þegar gengið er í hús og að tímanum loknum en ekki á meðan tímanum stendur þar sem við munum geta haldið tveggja metra fjarlægðartakmörkunum.
Sóttvarnir núna segja að 50 manns megi koma saman í íþróttaiðkun, en til að vera alveg örugg hef ég 25 pláss í hverjum tíma, auk kennara. Þetta getur að sjálfsögðu breyst og munu tölur verða uppfærðar á þessari síðu.

19:40
BEYONCÉ
Hársveiflur, twerk og almenn skvísulæti í anda poppdrottingarinnar. Upphitun, grunnspor, samhæfing, twerk og fleira.
Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Innanhússíþróttaskór.
Lengd tíma: 60 mínútur
"Það voru ekki liðnar 5 mínútur af fyrsta tímanum þegar ég hóf að dansa sem aldrei fyrr. Þessar fyrstu mínútur voru skemmtilegri en öll fjórtán árin mín í ballet til samans og eftir tímann skokkaði ég sveitt og hamingjusöm heim. Ég bæði lærði að dansa á nýjan hátt og að meta líkama minn. Allt í einu spilaði hamborgararassinn minn lykilhlutverk í danssporum, aldrei hefði ég trúað því."
- Anna Margrét, nemandi

ALGENGAR
SPURNINGAR
Er erfitt að taka alla þrjá tímana? Erfiðleikarnir felast aðallega í einbeitingu, en það er tíu mínútna pása á milli tímana til að fríska sig við. Ég mæli með að koma með vatnsflösku, íþróttadrykk eða létt nasl á milli ef ætlunin er að taka alla tímana.
Magadansinn er rólegur, Beyoncé er svitatími og burlesque-ið er mitt á milli. Þegar ég hef komið með svona danskvöld er um það bil helmingur þáttakenda sem taka tvo eða fleiri tíma.
Ég hef engan dansbakgrunn, er með tvo vinstri fætur og er taktlaus.... get ég mætt? Uh, frábært! Ég sérhæfi mig í að kenna fólki eins og þér. Ef allir kynnu að dansa væri ég atvinnulaus. Oftast snýst þetta um samhæfingu og hana er hægt að læra og æfa og feika. Ég kenni ykkur að vinna með það sem þið getið og hafið.