top of page
Burlesque- og húllanámskeið
í Hveragerði 21. janíar

Burlesque-, sirkus- og kabarettmeyjarnar Margrét Erla Maack og Róberta Michelle Hall verða með námskeið í Fitness-bilinu, Austurmörk 18. Nánar má lesa um stílana, tímana og kennarana hér að neðan.

18:00 Burlesque með Margréti

19:00 Húlla með Róbertu

Verð:
Einn tími kostar 3900

Tveir tímar kosta 6500

Tveir tímar+miði á sýningu um kvöldið: 7900

Skráning
Skráning

Takk fyrir skráninguna. ​

Við verðum í sambandi

innan sólarhrings.

Á hvaða námskeið viltu skrá þig?

Margrét mun senda póst með reikning (sem kemur frá reikningaþjónustunni Konto) og rukkun kemur í heimabankann á kennitöluna sem skráð er. 

 

Skilmálar:
- Skráning telst fullgild þegar greiðslu er lokið.

- Síðasti séns til að fá endurgreitt er 19. jan. Ef þú þarft að hætta við eftir það máttu að sjálfsögðu gefa öðrum plássið þitt, en við getum ekki endurgreitt eftir 19. jan.

Þú skráir þig í gegnum formið hér að ofan og þú færð kvittun og rukkun í heimabankann innan sólarhrings. Allir tímar miða að byrjendum en eru þannig að fólk með reynslu hefur mjög gaman að þeim.

Athugið að tímarnir henta konum með barn undir belti, ef þær eru ekki með grindargliðnun og eru almennt hraustar.

Um tímana
Miss Mokki By Kaspars Bekeris.jpg

15:00 BURLESQUE

Burlesque er kynþokkafullur kabarettdans sem gengið hefur í endurnýjun lífdaga síðastliðin ár og er Margrét frumkvöðull formsins á Íslandi. Gott fyrir sjálfstraustið og líkamann og frelsandi fyrir sálina. Hleyptu þinni innri dívu út í vernduðu umhverfi og sveipaðu þig dýrðarljóma liðinnar tíðar. Farið verður í grunntækni og kóreógrafíu.

Lengd tíma: 60 mín

Screenshot 2022-03-21 at 17.14.28.png

16:00 HÚLLA

Það er hægt að húlla á öllum líkamanum, ekki bara á mjöðmunum! Í tímanum verður farið í undirstöður húllaflæðis og að vinna með húllahring. Róberta er ein af frumkvöðlum hooplesque-sins á Íslandi svo við mælum með að taka báða tímana til að byggja á burlesque-tæknina. Vinsamlega athugið að það þarf alls ekki að kunna neitt að húlla til að njóta tímans. Róberta kemur með húllahringina með sér!

Lengd tíma: 60 mín

Um Margréti&Róbertu

Algengar spurningar

mynd vera páls 1.jpg

"HVERJU ER
BEST AÐ KLÆÐAST?

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Má vera sexí! Dansskór sem ekki fara illa með gólfið,, íþróttaskór, berfættar eða í sokkum. Mögulega er gólfið kalt. Við mælum líka með að setja á sig varalit.

Screenshot 2021-08-14 at 18.34.39.png

ERU TÍMARNIR
BARA FYRIR
KONUR?

Langflest sem mæta eru konur en öll eru velkomin sem taka þátt í tímanum með gleði og það markmið að læra eitthvað.

Screenshot 2021-03-19 at 14.33.03.png

ALDURS-
TAKMARK

Er aldurstakmark? Burlesque-ið er í grunninn strippdans, sem kemur úr vændiskúltúr, svo í þann tíma er 18 ára aldurstakmark. Það er þó ekkert aldurstakmark í hina áttina!

Screenshot 2021-08-14 at 18.29.09.png

​ÁHORFENDUR

Má ég koma að horfa? Nei - eins og segir í Friends: You dance a dance class. Danstíminn er fyrir þau sem taka þátt. Mjög oft er fólk að stíga út fyrir þægindarammann og það passar ekki að það séu áhorfendur. En það má sannarlega koma og horfa á sýninguna okkar sem verður á Ölverk um kvöldið! Miðasalan er hér.

137521786_10158375738828702_737103017793619245_n.jpg

"ÉG KANN EKKI
AÐ DANSA"

Ég hef engan dansbakgrunn, er með tvo vinstri fætur og er taktlaus.... get ég mætt? Uh, frábært! Við sérhæfum okkur í að kenna fólki eins og þér. Ef allir kynnu að dansa værum við atvinnulausar. 

Oftast snýst þetta um samhæfingu og hana er hægt að læra, æfa og feika. Við kennum ykkur að vinna með það sem þið getið og hafið.

bjorlesk original.jpg

VERÐUR
EITTHVAÐ SJÓV
Í TENGSLUM VIÐ TÍMANA?

HELDUR BETUR!!! Við verðum með sýningu sama kvöld á Ölverki þar sem ásamt okkur koma fram Vice Versa, Bibi Bioux og sérstakir gestir frá New York eru Broody Valentino og Tyler West

Screenshot 2022-03-21 at 17.11.42.png

LÍKAMLEGT
ÁLAG

Er erfitt að taka tvo tíma í röð? Erfiðleikarnir felast aðallega í einbeitingu. Burlesque-ið er ekki sérstaklega mikill hasartími, en húllað reynir á. Um það bil helmingur þáttakenda taka báða tímana.

​Þú þekkir líkamann þinn best og hans mörk. Það er auðvelt í danstíma að taka því rólega eða gefa í sitt á hvað, aðeins stíga til hliðar ef álagið er mikið og vera í rýminu þar sem þér líður best.

Algengar spurningar
Screenshot 2022-03-21 at 17.12.41.png

Um Róbertu

Róberta Michelle Hall er tiltölulega nýhætt í dagvinnunni og einbeitir sér að því að koma fram sem skemmtikraftur sem blandar saman sirkus og burlesque. Hún hefur húllað í fjölda ára og fann húllinu farveg í gegnum burlesque-ið. Róberta lærði hjá Margréti í Kramhúsinu en kemur núna fram með alls konar hópum: Dömum og herra, Túttífrúttunum, á Kjallarakabarett í Þjóðleikhús-kjallaranum, Búkalú, Drag-Kabarettinum Apocalipstick og Sóðabrók. Róberta er mikil talskona þess að öll geta eitthvað og miðlar tækninni sinni af leiftrandi húmor og gleði. Hún kemur fram fyrir fullorðna undir nafninu Bobbie Michelle en fyrir fólk á öllum aldri undir nafninu Húllumhæ Húllastelpan.

70281501_1255289711309827_6095545116947120128_n.jpg

Um Margréti

Margrét hefur starfað sem danskennari í 17 ár í Kramhúsinu og er einn vinsælasti kennari hússins. Jákvæð sjálfsmynd og líkamsvirðing eru höfð að leiðarljósi í tímunum þar sem geðrækt er ekki síður mikilvæg en líkamsrækt.

Margrét hlaut Íslensku dansverðlaunin 2014 sem besti danskennarinn. Hún er skemmtilegur kennari sem útskýrir á aðgengilegan hátt og sérhæfir sig í að kenna byrjendum og fólki sem hefur aldrei dansað áður. Hún var sérstakur danskennari þýska handboltalandsliðs karla í upptakti Evrópumeistaramótsins í handbolta 2016. Árið 2018 var hún í danskórnum í Rocky Horror í Borgarleikhúsinu. Margrét hefur farið í fjölda sýningarferðalaga sem burlesquedansmær um Evrópu og Bandaríkin og er fastaskemmtikraftur á hinum goðsagnakennda kabarettstað The Slipper Room í New York.

bottom of page