top of page

Má bjóða þér dans í heimabyggð? Ég get komið til ykkar með alls konar danstíma. 

Stundum hafa bæjarfélög samband við, mig, kvenfélög, vinnustaðir eða vinkonuhópar sem vilja athuga hvort ég hafi áhuga á að koma. Ég á fjöldann allan af danstímum sem henta sem svona stakir tímar. Til að það borgi sig fyrir mig að koma til ykkar þarf ég að kenna að minnsta kosti þrjá tíma. 

Ef ég er að koma í lengri tíma get ég einnig verið með tíma fyrir félagsmiðstöðvar, framhaldsskóla, hjúkrunarheimili og vinnustaði til að nýta ferðina. ​

HAFÐU SAMBAND
Hafðu samband

Takk fyrir!

Ég verð í sambandi

innan sólarhrings.

DANSSTÍLAR

Dansstílar

magadans2.png

MAGADANS

Dansinn úr austrinu þar sem dulúð og mjaðmahnykkjum er blandað saman í ljúfan kokkteil sem styrkir bak og maga. Magadans er aldagamall dans þar sem kvenlíkaminn nýtur sín og unnið er með hvern og einn líkama. Margrét sjálf byrjaði í magadansi vegna bakverkja og opnaði hann fyrir henni heim sjálfsástar og líkamsvirðingar. Í tímanum förum við stutt yfir sögu dansins, förum í grunnspor og lærum stuttan dans.

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Berfættar. Margrét kemur með peningabelti til að binda um mjaðmir... og nei, það þarf ekki að sýna magann frekar en hver og ein vill.

Lengd tíma: 60 mínútur

ezgif.com-video-to-gif-5.gif

HRISTUR OG 
TWERK

Skemmtilegur tími þar sem jafnt er losað um mjaðmir og hláturtaugar. Góðum partýtýrikkum lofað sem og frábærri tónlist. Öðruvísi þolæfingar og gott hláturskast. Farið er í shimmy, twerk, booty clap og sitthvað fleira.

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Berfættar eða í innanhússíþróttaskóm.

Lengd tíma: 60 mínútur

733b62_a2b5fa7ddd034c15859652b8944cf9cd~

DRAG/VOGUE

Vantar þig góð spor á dansgólfið? Elskarðu RuPaul's Drag Race? Við lærum nýdiskó og vogue, við frábára tónlist. Í tímanum förum við stutt yfir sögu dansins, förum í grunnspor og lærum stuttan dans auk þess að stúdera dragkaraktera.

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Berfættar eða innanhúsúíþrottaskór. 

Lengd tíma: 60 mínútur

hawaii-hula-girls-67539-ws.jpg

HAWAII-HULA

Ekki húllahringir, en huladans! Strápils, ananas og ölduniður. 

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar, sítt pils eða slæða bundin um mjaðmir - jafnvel strápils ef þú átt! Gaman er að vera með blóm í hárinu eða blómakrans. Berfættar.

Lengd tíma: 60 mínútur

116153715_3307284042663025_7333153206642

SKVÍSULÆTI

Almenn skvísulæti í anda alls konar drottninga. Upphitun, grunnspor, samhæfing, twerk og fleira. Í lok tímans lærum við dans sem hentar hópnum.

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Innanhússíþróttaskór.

Lengd tíma: 60 mínútur

"Það voru ekki liðnar 5 mínútur af fyrsta tímanum þegar ég hóf að dansa sem aldrei fyrr. Þessar fyrstu mínútur voru skemmtilegri en öll fjórtán árin mín í ballet til samans og eftir tímann skokkaði ég sveitt og hamingjusöm heim. Ég bæði lærði að dansa á nýjan hátt og að meta líkama minn. Allt í einu spilaði hamborgararassinn minn lykilhlutverk í danssporum, aldrei hefði ég trúað því."

            - Anna Margrét, nemandi

giphy-5.gif

1920s
Charleston

Bannárin, Gatsby, glamúr, perlur og fjaðrir! Algjör tímavél! 

Fatnaður: Gaman er að klæða sig í tímabilafatnað, en það er ekki nauðsynlegt! Gaman að vera með með fjaðrir í hárið, en annars er gaman að vera með síða perlufesti og hanska!

Lengd tíma: 60 mínútur

eilífðin 2-high-2.gif

SUND-
BALLETT

Sundballett, fimi, kóreógrafía, tækni en fyrst og fremst fíflagangur. Þessi tími hentar afar vel ef tímarnir fara fram í íþróttamannvirki - þá er hægt að enda á sundballettinum í prógramminu. Sumarið 2021 stóðum við systir mín fyrir slíkum tímum sem slógu algjörlega í gegn. Tímarnir henta öllum sem kunna að synda og ná til botns. Ég kem með sundhettur til láns!

Fatnaður: Sundföt

Lengd tíma: 50 mínútur

Cheerleaders-58e514b45f9b58ef7e5a9494.jpg

KLAPPSTÝRU-
​TÍMI

Skemmtilegt sambland af sirkus og danstíma! Pýramídinn, feiksplitt og að sjálfsögðu role call​! Ég kem með klappstýrudúskana!

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Berfættar eða innanhúsúíþrottaskór. 

Lengd tíma: 60 mínútur

Maackstarr-11.jpg

BURLESQUE

Burlesque er kynþokkafullur kabarettdans sem gengið hefur í endurnýjun lífdaga síðastliðin ár og er Margret frumkvöðull formsins á Íslandi. Gott fyrir sjálfstraustið og líkamann og frelsandi fyrir sálina. Hleyptu þinni innri dívu út í vernduðu umhverfi. Örsnöggt farið yfir sögu burlesquesins, upphitun, grunnspor og dans við lagið Why don't you do Right? með Julie London. 

Námskeiðið er ætlað fólki yfir 18 ára. 
Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar, dansskór sem fara vel með gólf eða berfættar.

Lengd tíma: 60 mín

_edited.jpg

BOLLYWOOD

Litagleði, stemning og frábær tónlist! Bollywood eru indverskir kvikmyndadansar þar sem blandast saman indverskir dansar, tákndansar, commercial, magadans, jazz, diskó... svo fátt eitt sé nefnt. Einstakur bræðingur og fjör. 

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Berfættar. Margrét kemur með peningabelti til að binda um mjaðmir... og nei, það þarf ekki að sýna magann frekar en hver og ein vill.

Lengd tíma: 60 mínútur

TutturJan-3.jpg

BROADWAY

Come on babe we don't we paint the town? Broadway-jazzballettklisjur og Fosse-hreyfingar, sporaþræðir,  hreyfigæði, jazzhendur og algjör tímavél.

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Berfættar, innanhús-íþrottaskór eða dansskór.

Lengd tíma: 60 mínútur

GettyImages-1155593058.jpg.webp

TINA TURNER

Skemmtilegur tími sem endar að sjálfsögðu á dansi við Proud Mary. Hiti, sviti og snerpa!

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Innanhússíþróttaskór.

Lengd tíma: 60 mínútur

UM MARGRÉTI

UM MARGRÉTI

Margrét hefur starfað sem danskennari í 17 ár í Kramhúsinu og er einn vinsælasti kennari hússins. Jákvæð sjálfsmynd og líkamsvirðing eru höfð að leiðarljósi í tímunum þar sem geðrækt er ekki síður mikilvæg en líkamsrækt.

Margrét hlaut Íslensku dansverðlaunin 2014 sem besti danskennarinn. Hún er skemmtilegur kennari sem útskýrir á aðgengilegan hátt og sérhæfir sig í að kenna byrjendum og fólki sem hefur aldrei dansað áður. Hún var sérstakur danskennari þýska handboltalandsliðs karla í upptakti Evrópumeistaramótsins í handbolta 2016. Árið 2018 var hún í danskórnum í Rocky Horror í Borgarleikhúsinu. Margrét hefur farið í fjölda sýningarferðalaga sem burlesquedansmær um Evrópu og Bandaríkin og er fastaskemmtikraftur á hinum goðsagnakennda kabarettstað The Slipper Room í New York.

Margrét hefur einnig starfað í fjölmiðlum og hefur starfað við dagskrárgerð á RÚV, Stöð 2 og Hringbraut.

Umsagnir nemenda

Umsagnir 

 

"Mér fannst frábært að fá innlit í sögu dansana og tenginguna milli þeirra, hefði ekki vilja missa af neinu í þessari upplifun. Það sem kom mér skemmtilega á óvart var hversu mikil sjálfstyrking, pepp og húmor var í gangi."

"Ég kveið mjög fyrir að mæta, því ég er algjörlega hreyfiheft með öllu, en svo var bara svo gaman!"

"Þetta reyndi á alla þætti likamans; andlega og líkamlega. Ég fór alsæl heim 😍 sæl, þreytt og glöð, og algjörlega tilbúinn að fara á fleiri svona námskeið 😀"

"Mjög skemmtilegt. Fannst álagið alls ekki mikið þegar við vorum að dansa en var samt alveg þreytt eftir þessa 3 tíma. Takk fyrir mig 😃"

"Takk takk þú ert svo dásamleg fyrirmynd."

"Ja vil þakka fyrir mig og VÁ hvað Margrét er góður og flottur dansari.Og hvað hún gat látið mig öðlast mikið sjálfstraust með líkamann minn á svona stuttum tíma.TAKK MARGRÉT ERLA SVO MIKIÐ❤"

"Takk fyrir að koma til okkar og komdu sem oftast. Þetta var alveg dásamlegt og nauðsynlegt að hrista aðeins uppí innri dívunni í okkur, nærandi fyrir líkama OG sál <3"

"Ég var rosalega ánægð með tímana og finnst Margrét rosalega blátt áfram, lífleg og góður kennari. Hlakka til að gera meira 🙂"

ALGENGAR SPURNINGAR

Algengar spurningar

Screenshot 2021-08-14 at 23.07.17.png

"ÉG KANN
EKKI AÐ
DANSA"

Ég hef engan dansbakgrunn, er með tvo vinstri fætur og er taktlaus.... get ég mætt? Uh, frábært! Ég sérhæfi mig í að kenna fólki eins og þér. Ef allir kynnu að dansa væri ég atvinnulaus. Oftast snýst þetta um samhæfingu og hana er hægt að læra og æfa og feika. Ég kenni ykkur að vinna með það sem þið getið og hafið.

Screenshot 2021-08-14 at 18.34.39.png

ERU TÍMARNIR
BARA FYRIR KONUR?

Langflest sem mæta eru konur en öll eru velkomin sem taka þátt í tímanum með gleði og það markmið að læra eitthvað.

213312737_334747351448149_8269686392406538046_n.jpg

​ÁHORFENDUR

Má ég koma að horfa? Nei - eins og segir í Friends: You dance a dance class. Danstíminn er fyrir þau sem taka þátt. Mjög oft er fólk að stíga út fyrir þægindarammann og það passar ekki að það séu áhorfendur.

733b62_7a88f1077536492a869c1ef5230d08a4~mv2_d_2048_1365_s_2.jpg

ALDURS-
TAKMARK

Er aldurstakmark? Börn eru mismunandi eins og þau er mörg. Leiðbeinandi aldurstakmark er 13 ára. Ég tala mikið um grindarbotn, samfarahreyfingar og slíkt, svo þið berið ábyrgð á ykkar barni. Burlesque-ið er þó í grunninn strippdans, svo þar er 18 ára aldurstakmark. Og það er ekkert aldurstakmark í hina áttina!

​Ég hef einnig gert sértíma fyrir börn eða unglinga og fjölskyldu- eða mæðgnatíma.

giphy-6.gif

HVAÐA
DANS?

Mig langar að fá þig að kenna en ég veit ekki hvað ég ætti að velja... Þegar ég kem í fyrsta sinn er algengast að ég komi með magadans, Beyoncé og burlesque. S.s. fyrst mjaðmalosunartíma eins og magadans, Bollywood eða Hawaii húla - svo hasar eins og Beyoncé, Tinu Turner, 1920s eða hristur og twerk, og lýk svo deginum á svona út fyrir kassann tímum eins og burlesque eða drag. Það sem skiptir máli er að hafa tímana fjölbreytta og úr ýmsum áttum til að fólk í alls konar formi og á fjölbreyttum aldri hafi áhuga á að koma.

61145817_2372929326277389_4820638758653132800_o.jpg

LÍKAMLEGT
ÁLAG

Er erfitt að taka tvo, jafnvel þrjá tíma í röð? Erfiðleikarnir felast aðallega í einbeitingu, og því er 10-15 mínútna pása á milli tíma.Ég byggi upp tímana þannig að fyrir hraust fólk ætti ekki að vera vandamál að taka þrjá tíma í röð Á laugardeginum er magadansinn rólegur, Beyoncé er svitatími og burlesque-ið er rólegt. Þegar ég hef komið með svona dansdag er um það bil helmingur þáttakenda sem taka tvo eða fleiri tíma.

​Þú þekkir líkamann þinn best og hans mörk. Það er auðvelt í danstíma að taka því rólega eða gefa í sitt á hvað, aðeins stíga til hliðar ef álagið er mikið og vera í rýminu þar sem þér líður best.

​Tímarnir henta ófrískum og hraustum sem hafa ekki glímt við grindarerfiðleika.

71546536_376062446630278_4408528554883547136_o.jpg

KOSTNAÐUR

Hvað kosta tímarnir? ​Ég reyni að halda kostnaði tímana í algjöru lágmarki en ýmsar breytur koma þar inn í - hvort ég fái styrk frá bænum eða stórum vinnustað, ef ég þarf að gista og þá hvort ég geti gist hjá vinum og fjölskyldu, og ferðakostnaði öðrum. Algengast er að einn tími kosti 3500, tveir 6000 og þrír 7500.

Stundum fá bæjarfélög mig til þess að koma og bjóða upp á tímana ókeypis eða ódýrari. 

bottom of page