top of page
mynd vera páls 1.jpg

Ég verð með fjóra danstíma í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í lok febrúar.

26. febrúar

18:00 Skvísulæti

19:00 Magadans

​27. febrúar

17:30 Rassahristur

18:30 Burlesque

Einn tími kostar 3900

tveir tímar kosta 6900 (3450 kr. tíminn)

þrír tímar kosta 8900 (2967 kr. tíminn)

og fjórir kosta 9900 (2475 kr. tíminn)

Þú skráir þig í gegnum formið hér að neðan og ég hef svo samband innan sólarhrings. Nánar um dansstílana er að finna neðar á síðunni. Allir tímar miða að byrjendum en henta fólki með allskonar dansbakgrunn.

Í hverjum tíma er pláss fyrir 20 manneskjur auk kennara.

Athugið að tímarnir henta konum með barn undir belti, ef þær eru ekki með grindargliðnun og eru almennt hraustar. Einnig er auðvelt að aðlaga hreyfingar að alls konar getu.

Ef öll kynnu að dansa þá væri ég atvinnulaus!

20250308_MargaretMaack__198.jpg

Um Margréti

Margrét hefur starfað sem danskennari í 21 ár í Kramhúsinu og er einn vinsælasti kennari hússins. Jákvæð sjálfsmynd og líkamsvirðing eru höfð að leiðarljósi í tímunum þar sem geðrækt er ekki síður mikilvæg en líkamsrækt.

Margrét hlaut Íslensku dansverðlaunin 2014 sem besti danskennarinn. Hún er skemmtilegur kennari sem útskýrir á aðgengilegan hátt og sérhæfir sig í að kenna byrjendum og fólki sem hefur aldrei dansað áður. Hún var sérstakur danskennari þýska handboltalandsliðs karla í upptakti Evrópumeistaramótsins í handbolta 2016. Árið 2018 var hún í danskórnum í Rocky Horror í Borgarleikhúsinu og um þessar mundir dansar hún í sýningunni Þetta er Laddi í Borgarleikhúsinu.

Margrét hefur farið í fjölda sýningarferðalaga sem burlesquedansmær um Ísland, Evrópu og Bandaríkin og er fastaskemmtikraftur á hinum goðsagnakennda kabarettstað The Slipper Room í New York. Undanfarin þrjú leikár hefur hún stjórnað Kjallarakabarett í Þjóðleikhúskjallaranum ásamt Gógó Starr.

Margrét á einnig að baki fjölmiðlaferil og hefur starfað við dagskrárgerð á RÚV og Stöð 2.

Margrét þolir ekki að vera kölluð Magga.

Skráning
Á hvaða námskeið viltu skrá þig? Það má merkja við fleiri en eitt. Required

Ég sendi greiðsluseðla af stað þegar lágmarksskráningu hefur verið náð, sem eru 10 kvenns í hvern tíma að meðaltali svo ég eigi fyrir húsaleigu og ferðakostnaði. 

 

Skráning er bindandi, þér er þó frjálst að gefa öðrum plássið þitt eða selja það.

Takk fyrir skráninguna. ​

Ég verð í sambandi

innan sólarhrings.

116153715_3307284042663025_7333153206642

26. FEB
18:00
SKVÍSULÆTI

Langvinsælasta dansnámskeið sem ég hef nokkru sinni kennt. Losað um skandínavískar mjaðmir með skandinavískri skvísutónlist. Þol- og styrktaræfingar í bland við dans, gleði og glens. Tíminn er fyrst og fremst hugsaður sem geðrækt, fremur en líkamsrækt.

Upphitun, samhæfing og við lærum dans við Where is my Husband? með Raye.

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Berfættar eða í innanhússíþróttaskóm.

Lengd tíma: 60 mínútur

Sviti: Mikill

83933994_121912715803910_8248366034906513408_n_edited.jpg

27. FEB​
17:30

RASSAHRISTUR

Skemmtilegur tími þar sem jafnt er losað um mjaðmir og hláturtaugar. Góðum partýtýrikkum lofað sem og frábærri tónlist. Öðruvísi þolæfingar og gott hláturskast. Farið er í shimmy, twerk, booty clap og sitthvað fleira og svo góðar teygjur í lokin til að ballansera kroppinn eftir þessar nýju hreyfingar.

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Við förum á hvolf og niður á gólf, svo ekki eitthvað sem þú ert hrædd um að vera með plömmer í eða í pilsi og engum buxum. Berfættar eða í innanhússíþróttaskóm.

Lengd tíma: 60 mínútur

Sviti: Mikill

magadans2.png

26. FEB
19:00
MAGADANS

Dansinn úr austrinu þar sem dulúð og mjaðmahnykkjum er blandað saman í ljúfan kokkteil sem styrkir bak og maga. Magadans er aldagamall dans þar sem kvenlíkaminn nýtur sín og unnið er með hvern og einn líkama. Margrét sjálf byrjaði í magadansi vegna bakverkja og opnaði hann fyrir henni heim sjálfsástar og líkamsvirðingar. Í tímanum förum við sttt yfir sögu dansins, förum í grunnspor og lærum stuttan dans.

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Berfættar. Margrét kemur með peningabelti til að binda um mjaðmir... og nei, það þarf ekki að sýna magann frekar en hver og ein vill.

Lengd tíma: 60 mínútur

Sviti: Miðlungs​

733b62_0205d0adfaa643a9946b3461cf411668~mv2-2.png

27. FEB:
18:30
BURLESQUE

Burlesque er kynþokkafullur kabarettdans sem gengið hefur í endurnýjun lífdaga síðastliðin ár og er Margret frumkvöðull formsins á Íslandi. Gott fyrir sjálfstraustið og líkamann og frelsandi fyrir sálina. Hleyptu þinni innri dívu út í vernduðu umhverfi. Örsnöggt farið yfir sögu burlesquesins, upphitun, grunnspor og frumsaminn dans fyrir hópinn.

Námskeiðið er ætlað fólki yfir 18 ára.
Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar, dansskór sem fara vel með gólf eða berfættar.

Lengd tíma: 60 mín

Sviti: Lítill

bottom of page