top of page

BURLESKFERÐ TIL NEW YORK
11.-15. sept

Allt það besta sem New York,
borg allra borga, býður upp á:
Sýningar - matur - námskeið
burlesk - drag - sirkus 


Fararstýrur: Margrét Maack og Gógó Starr

Myndir sem gefa mynd af stemmaranum í ferðinni. 
Skoða fleiri myndir hér.

Ferðaplan

Ferðaplan

Allur pakkinn, með flugi: 320.000

Allur pakkinn, án flugs: 220.000

Innifalið er:

Flug ca 100.000

Gisting ca 120.000

Rest um 100.000:

Sýningar alla dagana (samtals 5)

Leiðsögn um garnment district og fleira

Kvöldmatur fimmtudagskvöld

Burlesque námskeið

Kvöldmatur föstudagskvöld

Leiðsögn um Coney Island

Burlesque brunch sunnudag

Allt sem er feitletrað í ferðaplaninu er innifalið. Þegar við borðum eru áfengir drykkir ekki innifaldir og hvert og eitt borgar sína kokkteila.

ATH: Þetta er loðið plan sem gæti breyst - Við leggjum okkur fram við að finna bestu sýningarnar og skemmtilegustu upplifunina!

Einnig getur gengi íslensku krónunnar haft áhrif.

IMG_0795.HEIC

​Áður en haldið er af stað

- ESTA FORM

- Bólusetningarvottorð

- Bólusetningar, valkvætt

- Vegabréf

- Önnur skilríki

- Eru kort í lagi?

- CASH

Screenshot 2023-01-01 at 18.51.41.png

Fimmtudagur

9:00 Hittumst í lobbýinu og förum í Garment District. Vera búin að fá sér morgunmat áður en lagt er í hann. 

Við byrjum á heimsókn í elstu silkiblómaverksmiðju borgarinnar. 

 

Gógó fer í lengri ferð í Feather Place, appliques, efnavörur, Sephora og Earrings Plaza.


Margrét leiðir styttri ferð sem er Feather Place, appliques og Earrings plaza (s.s. ekki efnavörubúðir eða meiköpp).

Frjáls hádegismatur og frjáls tími þar til við hittumst. Mælt er með rólegheitum!

17:00 hittast í lobbýi

Löbbum á Café Mogador - dinner

​Sýning um kvöldið
 

Screenshot 2023-01-01 at 18.47.10.png

Sunnudagur

Frjáls tími. 

13:00 hittast í lobbýi og löbbum á Duane Park.
14:00 Burlesque Brunch á Duane Park

Flug heim

IMG_0721.HEIC

Þegar pakkað er í tösku

- Skynsamlegir skór

- Föt fyrir danstíma

- Tote Bag/bakpoki

- Það þarf mjög lítið til að vera smart í NYC, ótrúlegt en satt!

- Hafa pláss í töskunni til að geta keypt hluti

- Eyrnatappar og heyrnartól, svefngríma

- Hleðslutæki,  adaptorar, hleðslupungur

- Létt peysa eða sjal - loftræstingin gerir fólk lasið!

 

Ath veðurspá þegar nær dregur!

image.jpg

Föstudagur 

Frjáls tími

13:00 hittast í lobbýi

14:00 Burlesque workshop

Frjáls tími

Kvöldmatur

Sýning á Slipper Room eða House of Yes.

reykjavik-iceland-shutterstock_398496772-1024x683.jpg

Mánudagur

Lending á Íslandi eldsnemma morguns.

large_36130_4966935.jpg

Miðvikudagur

Við komum okkur sjálf út á völl. 

Flug kl. 17:00

Lent í New York um kl. 19:10

Lest á hótelið. 

Frjálst kvöld, mæli með að halda sér vakandi. Margrét fer á sjóv á Apotheke (ókeypis, en komið með tip-pening).

Image by Brian Kyed

Laugardagur

13:00 Hittast í lobbýi, vera búin að borða

Coney Island-dagur!

Side show

Bambi the Mermaid leiðir okkur um Coney Island og segir okkur söguna

Frjáls tími

MISS CONEY ISLAND

Ruglaðasta burlesque-keppni heims.

Skráning

KOMDU MEÐ

Hvort má bjóða þér?

Seinni valkosturinn er frábær fyrir þau sem vilja vera lengur og fá meira úr ferðinni eða vilja bóka flugmiðana sjálfar, t.d. vegna þess að þær vilja vera á Saga Class, taka með sér fleiri en eina inntékkaða tösku eða nýta flugpunkta. Það er ekki í boði að gista annars staðar í þessum ferðum, þar sem bið- og flækjustig verður mikið ef við erum ekki öll á sama stað.

Hvernig viltu borga? Ég ákvað að smyrja ekkert á þrátt fyrir greiðsludreifingu. Einnig munum við gera fjáröflunarsýningu fyrir ferðina sem fer í extralúxus. Skráning er bindandi.

Hvenær viltu borga fyrstu greiðslu?
Í hversu mörgum greiðslum?
Við verðum tvö og tvö saman í herbergi. Ef þú vilt sérherbergi kostar það 90.000 krónur extra og leggst ofan á verðið hér að ofan. Hvað má bjóða þér?

Skilmálar:
1. Margrét Erla Maack er ekki ferðaskrifstofa, svo endurgreiðsla eftir að flug hefur verið bókað er ekki möguleiki. Ef um veikindi, óléttur eða slíkt er hægt að fá endurgreitt fyrir utan flug. Ef þú vilt fara í ferð síðar (ég geri svona ferðir einu sinni á ári) þá er í boði að færa sig í aðra ferð síðar og frysta greiðslurnar.  

Flug fyrir september ferð bókað eins fljótt og hægt er, ég mun fylgjast með tilboðum.

2. Með því að skrá þig í ferðina og veita upplýsingar um matarpreferensa gefur þú Margréti Erlu Maack fullt traust til að búa til geggjuðustu ferð í heimi. 

3. Að lágmarki 8 verða að skrá sig svo af ferðinni verði.

 

4. Góða skapið verður að vera meðferðis.

 

5. Að ferðast til Bandaríkjanna krefst þess að þú fyllir út ESTA-form, sem þið sjáið 

sjálf um að fylla út. Sömuleiðis sérð þú um að hafa covid-skjöl tilbúin ef USA óskar eftir því, mögulega getur verið beðið um bólusetningarvottorð.

 

6. Ferðin er eingöngu fyrir þau sem hafa brennandi áhuga á burlesque-forminu. Þægilegir makar eru velkomnir með. 

 

7. Það þarf ekki að taka þátt í öllu prógramminu, t.d. ef þið viljið hitta vini, sjá leikhús eða lendið á séns með djögglara. Ferðin kostar 290.000/200.000 og það er undir ykkur komið ef þið viljið sleppa einhverju sem er innifalið, ekki er veittur afsláttur eða endurgreiðsla ef þú ákveður að sleppa einhverju, láttu samt vita því á flestar sýningar þarf að kaupa miða fyrirfram.

 

8. Við munum gista á Allen Hotel, hinu undursamlega.  

Takk fyrir skráninguna! Hún er móttekin. ÞÚ FÆRÐ EKKI STAÐFESTINGARPÓST FYRR EN MARGRÉT HEFUR FARIÐ HANDVIRKT YFIR SKRÁNINGUNA. Ég verð í sambandi og rukkanirnar mæta í heimabankann.

Mæli með:

Alls konar sneddí í New York:

Hér eru hlutir sem ég mæli með. Ég er ekki að fara að mæla með Empire State eða einhverju beisikk, heldur bara hlutum sem mér þykja mergjaðir. Endilega spyrjið ykkar fólk með hverju það mælir. Og ef þig hefur alltaf langað að prófa einhvern exótískan mat þá get ég LOFAÐ að það er hægt að fá hann í New York. Við munum fara á nokkra af mínum uppáhaldsstöðum svo þeir eru ekki hér upptaldir.

vintage_2-2.jpg

Raoul's

Tvímælalaust uppáhalds-veitingastaðurinn minn. Stofnaður 1975 og er hinn sanni franski bistro með svona aðeins of erótískri list á veggjunum. Bestu martiníar í bænum og tarotspákona á efri hæðinni. Mæli með að fá piparsteikina en splitta henni í tvennt með vini, hún er mjög vel útilátin! ATH það VERÐUR að panta borð og opnað er fyrir borðapantanir viku fyrir daginn sem þú vilt koma.

scale;.jpeg

Café Mogador

Frábær marakkóskur veitingastaður í East Village. Algjör upplifun og yndislegt.

03d442b2-f016-42da-8163-bf5deebbe36e.jpeg

Rice to Riches

Grjónagrautsstaður með alls konar toppings og 

skemmtilegum brögðum. 

Frábær morgunmatur, kaffitímasnarl eða late night snack og skemmtilegt inspó fyrir heimagrjónagrautinn.

moic12_750xx4000-2250-0-210.jpg

Museum of

Ice Cream 

Þú heldur kannski að þetta sé eitthvað sniðugt nafn á ísbúð en NEI. Það er íssafn í New York fyrir allar þínar ís- og instagramfantasíur. Til að fá sem mest út úr selfíleiknum mæli ég með að klæðast pastellitum.

IMG_5454.jpeg

Swedish Marionette Theater

Perla í Central Park. Vinur okkar Broody Valentino stjórnar þarna brúðum og gerir búninga! Algjört kjút. Ódýrir miðar og næs. Látið hann vita ef þið ætlið að kíkja svo hann geti leyft ykkur að skoða á bakvið eftir sýninguna!

Kalustyan's

Fyrir mörgum árum ákvað leigubílstjóri nokkur að opna kryddbúð með kryddum sem hann saknaði frá heimalandinu. Smátt og smátt fór að hann að flytja inn og selja krydd og mat sem aðrir leigubílstjórar söknuðu. Núna teygir búðin sig yfir um sex verslunarrými sem selur nákvæmlega öll krydd í heimi og sitthvað fleira. Ég vil biðjast fyrirfram afsökunar á valkvíðanum sem þið fáið sem og hvað þið eruð að fara að verja miklum pening þarna. Síðast þegar ég fór varði ég 440 dollurum. Algjört möst fyrir matarnörda!!!

yuca.jpg

Yuca Bar

Dásamlegur suður-amerískur tapasbar. Stórkostlegur bröns, vel gerðar sangríur og mojito með alvöru sykurreyr. Gaman að fara nokkur saman og smakka alls konar. Mæli með að panta borð.

flatten;crop;webp=auto;jpeg_quality=60.jpg.webp

Economy Candy

MJÖG ÞRÖNG og PÍNULÍTIL sælgætisbúð með rosalega skemmtilegu nammi og ótrúlegu úrvali. Frábært að stoppa þarna ef þið viljið slá í gegn hjá krökkunum ykkar eða nammisjúkum maka. ATH ekki fara of mörg þarna inn í einu!!!!!

merlin_201113304_bde901f2-efc3-4703-8eb4-ab22761cfd08-mobileMasterAt3x.jpg

Sleep No More

Sleep No More er leikhús sem þú gengur í gegnum, völundarhús byggt á Macbeth. Ótrúlega flott sýning sem ég hef farið fjórum sinnum á, hvílík upplifun og smáatriði. Sambland af leikhúsi, hönnun, burlesk, nútímadansi, völundarhúsi, tónlist, upplifunarleikhúsi, sirkus.... svo fátt eitt sé nefnt.

massage.jpg.webp

Fegurð og lúxus

Mæli með að fara í fót- og handsnyrtingu, nudd ýmiskonar, vax og threading. New York er á háum klassa og svona staðir eru út um allt. Google Maps er vinur þinn. 

5c1972fd01c0ea3c0b076384.jpeg

Trader Joe's

Að fara í matvöruverslun í útlöndum er fyrir mér eins og að fara á safn. Þessi búð er mjög skemmtileg. Hér er aldeilis hægt að fylla á snakkbirgðir heimilisins og kaupa skrýtna en góða drykki. Trader Joes er með pínulitla og rosalega bissí búð uppi við Union Square en útibúið í Lower East Side (rétt hjá Essex Market þar sem við borðum hádegismat á föstudeginum) er risastórt, ekki eins bissi og með betra úrval. Mæli með facebook hópnum Favorite Trader Joe’s Products til að undirbúa sig vel. Góða skemmtun.

image-asset-4.jpeg

Chelsea Market

Chelsea Market er mathöll allra mathalla  Frábærir ressar og góður stemmari. Sætar litlar búðir með frábærum minjagripum sem hægt er að borða.

ChinatownIceCreamFactoryBestIceCreamPlacesinNYCTheTravelWomen.jpgChinatownIceCreamFactoryB

Chinatown

Ice Cream Factory

Exótískasta ísbúðin. Hér er sko bannað að fá sér vanilluís! Mínir uppáhalds eru black sesame og matcha oreo. Tilvalið í degi í China Town / Little Italy og fara í mai/pedi eða nudd, fá sér pizzu og svo fara þangað. Mega.

Travel to Broadway_HERO.jpg

Broadway!

Ef þú hefur aldrei komið til New York er möst að fara á söngleik. Best er að kaupa miða með stuttum fyrirvara í gegnum t.d. TKTS-heimasíðuna, þá er hægt að fá miða á fínasta verði. Suma vikudaga eru matinée-sýningar kl. 2 eða 3 sem er frábært ef veður er leiðinlegt eða of heitt.

cvs-pharmacy-interior.jpg

Apótek

Ég elska amerísk apótek! Ódýrt meiköpp og frábær amerísk flensulyf. 10/10.

Fresh Pizzas

PIZZA!!!

Það er mjög erfitt að fá vonda pizzu í New York. Og ef hún er ekki frábær þá kostar risasneið líklega 1-2 dollara sem er snilld. Ef þú ert hins vegar pizzuNÖRD þá er hægt að fara í pizzuferðir, gönguferðir og í rútu með æðislegum gaur sem er pizzusagnfræðingur!!! Líka gaman að horfa á heimildamyndina, hún er á Amazon Prime. 

131013_SHoP_EssexMrkt_Ewing-9267_jpg.jpg

Essex Market

Í nágrenni hótelsins okkar er Essex Market sem er frábær mathöll með æðislegri ostabúð og alls konar búðum, auk fjölbreytts úrval matsölustaða. Miklu meira lókal og ekki eins bissí og Chelsea Market. 

van-leeuwen-ice-cream-172-ludlow-st-new-york-ny-exterior-storefront-of-an-ice-cream-shop-i

Van Leeuwen Ice Cream

Þetta er ísbúðin sem vantar á Íslandi. Glæsilegt úrval af veganísum SEM ERU EKKI SORBET og óveganísum.

10 stig.

The_Comedy_Cellar_(48072765427).jpg

Comedy Cellar

Algjör menningarstofnun. Þarna er hægt að sjá stærstu uppistandsstjörnurnar prófa nýtt efni. Lítill, sveittur og innilegur. Pantið borð!

bottom of page