top of page
Skráning
Danstímar í Stykkishólmi 4. sept

Ég verð með þrjá danstíma í íþróttamiðstöðinni í Stykkishólmi 4. september. 

13:00: Magadans örfá pláss laus

14:15 Beyoncé örfá pláss laus

15:30 Burlesque 

Einn tími kostar 3500, tveir tímar kosta 6000 og þrír tímar kosta 7500.

Screenshot 2021-09-04 at 00.32.02.png

Þú skráir þig í gegnum formið hér að ofan og ég hef svo samband innan sólarhrings. Nánar um dansstílana er að finna örlítið neðar á síðunni. Allir tímar miða að byrjendum en eru þannig að fólk með reynslu hefur mjög gaman að þeim.

Athugið að tímarnir henta konum með barn undir belti, ef þær eru ekki með grindargliðnun og eru almennt hraustar.

​Síðasti séns til að skrá sig er 3. sept, daginn áður en námskeiðið hefst. Ég minni þó á að það er takmarkað pláss í tímana svo ég hvet ykkur til að skrá ykkur sem fyrst til að missa ekki af plássi. Sömuleiðis að ef þú þarft að hætta við og fá endurgreitt er síðasti dagur til að fá endurgreitt 2. sept.

magadans2.png

13:00

MAGADANS

Dansinn úr austrinu þar sem dulúð og mjaðmahnykkjum er blandað saman í ljúfan kokkteil sem styrkir bak og maga. Magadans er aldagamall dans þar sem kvenlíkaminn nýtur sín og unnið er með hvern og einn líkama. Margrét sjálf byrjaði í magadansi vegna bakverkja og opnaði hann fyrir henni heim sjálfsástar og líkamsvirðingar. Í tímanum förum við sttt yfir sögu dansins, förum í grunnspor og lærum stuttan dans.

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Berfættar. Margrét kemur með peningabelti til að binda um mjaðmir... og nei, það þarf ekki að sýna magann frekar en hver og ein vill.

Lengd tíma: 60 mínútur

116153715_3307284042663025_7333153206642

14:15

BEYONCÉ

Hársveiflur, twerk og almenn skvísulæti í anda poppdrottingarinnar. Upphitun, grunnspor, samhæfing, twerk og fleira. Í lok tímans lærum við dans við Single Ladies.

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Innanhússíþróttaskór.

Lengd tíma: 60 mínútur

"Það voru ekki liðnar 5 mínútur af fyrsta tímanum þegar ég hóf að dansa sem aldrei fyrr. Þessar fyrstu mínútur voru skemmtilegri en öll fjórtán árin mín í ballet til samans og eftir tímann skokkaði ég sveitt og hamingjusöm heim. Ég bæði lærði að dansa á nýjan hátt og að meta líkama minn. Allt í einu spilaði hamborgararassinn minn lykilhlutverk í danssporum, aldrei hefði ég trúað því."

            - Anna Margrét, nemandi

733b62_0205d0adfaa643a9946b3461cf411668~

15:30

BURLESQUE

Burlesque er kynþokkafullur kabarettdans sem gengið hefur í endurnýjun lífdaga síðastliðin ár og er Margret frumkvöðull formsins á Íslandi. Gott fyrir sjálfstraustið og líkamann og frelsandi fyrir sálina. Hleyptu þinni innri dívu út í vernduðu umhverfi. Örsnöggt farið yfir sögu burlesquesins, upphitun, grunnspor og dans við lagið Why don't you do Right? með Julie London. 
Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar, dansskór sem fara vel með gólf eða berfættar.

Lengd tíma: 60 mín

Um tímana
Um Margréti

Um Margréti

Margrét hefur starfað sem danskennari í 17 ár í Kramhúsinu og er einn vinsælasti kennari hússins. Jákvæð sjálfsmynd og líkamsvirðing eru höfð að leiðarljósi í tímunum þar sem geðrækt er ekki síður mikilvæg en líkamsrækt.

Margrét hlaut Íslensku dansverðlaunin 2014 sem besti danskennarinn. Hún er skemmtilegur kennari sem útskýrir á aðgengilegan hátt og sérhæfir sig í að kenna byrjendum og fólki sem hefur aldrei dansað áður. Hún var sérstakur danskennari þýska handboltalandsliðs karla í upptakti Evrópumeistaramótsins í handbolta 2016. Árið 2018 var hún í danskórnum í Rocky Horror í Borgarleikhúsinu. Margrét hefur farið í fjölda sýningarferðalaga sem burlesquedansmær um Evrópu og Bandaríkin og er fastaskemmtikraftur á hinum goðsagnakennda kabarettstað The Slipper Room í New York.

Margrét hefur einnig starfað í fjölmiðlum og hefur starfað við dagskrárgerð á RÚV, Stöð 2 og starfar nú á Hringbraut.

Umsagnir nemenda

Umsagnir

"Mér fannst frábært að fá innlit í sögu dansana og tenginguna milli þeirra, hefði ekki vilja missa af neinu í þessari upplifun. Það sem kom mér skemmtilega á óvart var hversu mikil sjálfstyrking, pepp og húmor var í gangi."

"Ég kveið mjög fyrir að mæta, því ég er algjörlega hreyfiheft með öllu, en svo var bara svo gaman!"

"Þetta reyndi á alla þætti likamans; andlega og líkamlega. Ég fór alsæl heim 😍 sæl, þreytt og glöð, og algjörlega tilbúinn að fara á fleiri svona námskeið 😀"

"Mjög skemmtilegt. Fannst álagið alls ekki mikið þegar við vorum að dansa en var samt alveg þreytt eftir þessa 3 tíma. Takk fyrir mig 😃"

"Takk takk þú ert svo dásamleg fyrirmynd."

"Já vil þakka fyrir mig og VÁ hvað Margrét er góður og flottur dansari. Og hvað hún gat látið mig öðlast mikið sjálfstraust með líkamann minn á svona stuttum tíma.TAKK MARGRÉT ERLA SVO MIKIÐ❤"

"Takk fyrir að koma til okkar og komdu sem oftast. Þetta var alveg dásamlegt og nauðsynlegt að hrista aðeins uppí innri dívunni í okkur, nærandi fyrir líkama OG sál <3"

"Ég var rosalega ánægð með tímana og finnst Margrét rosalega blátt áfram, lífleg og góður kennari. Hlakka til að gera meira 🙂"

Algengar spurningar

Algengar spurningar

Screenshot 2021-08-14 at 23.07.17.png

"ÉG KANN EKKI

DANSA"

Ég hef engan dansbakgrunn, er með tvo vinstri fætur og er taktlaus.... get ég mætt? Uh, frábært! Ég sérhæfi mig í að kenna fólki eins og þér. Ef allir kynnu að dansa væri ég atvinnulaus. Oftast snýst þetta um samhæfingu og hana er hægt að læra og æfa og feika. Ég kenni ykkur að vinna með það sem þið getið og hafið.

Screenshot 2021-08-14 at 18.34.39.png

ERU TÍMARNIR
BARA FYRIR KONUR?

Langflest sem mæta eru konur en öll eru velkomin sem taka þátt í tímanum með gleði og það markmið að læra eitthvað.

733b62_7a88f1077536492a869c1ef5230d08a4~mv2_d_2048_1365_s_2.jpg

ALDURS-
TAKMARK

Er aldurstakmark? Börn eru mismunandi eins og þau er mörg. Leiðbeinandi aldurstakmark er 13 ára. Ég tala mikið um grindarbotn, samfarahreyfingar og slíkt, svo þið berið ábyrgð á ykkar barni. Burlesque-ið er þó í grunninn strippdans, svo þar er 18 ára aldurstakmark. Og það er ekkert aldurstakmark í hina áttina!

213312737_334747351448149_8269686392406538046_n.jpg

​ÁHORFENDUR

Má ég koma að horfa? Nei - eins og segir í Friends: You dance a dance class. Danstíminn er fyrir þau sem taka þátt. Mjög oft er fólk að stíga út fyrir þægindarammann og það passar ekki að það séu áhorfendur.

61145817_2372929326277389_4820638758653132800_o.jpg

LÍKAMLEGT
ÁLAG

Er erfitt að taka tvo, jafnvel þrjá tíma í röð? Erfiðleikarnir felast aðallega í einbeitingu, en á laugardeginum er korters pása á milli tímana til að fríska sig við. Á föstudeginum er markmiðið að dansa af sér vikuna, og þeir tímar eru ákveðin útrás. Á laugardeginum er magadansinn rólegur, Beyoncé er svitatími og burlesque-ið er rólegt. Þegar ég hef komið með svona dansdag er um það bil helmingur þáttakenda sem taka tvo eða fleiri tíma.

​Þú þekkir líkamann þinn best og hans mörk. Það er auðvelt í danstíma að taka því rólega eða gefa í sitt á hvað, aðeins stíga til hliðar ef álagið er mikið og vera í rýminu þar sem þér líður best.

bottom of page