Þegar ég svara fyrirspurnum fer svarið stundum í ruslapósthólfið. Athugið þar ef þið hafið ekki fengið svar frá mér eftir 48 tíma.
Danstímar á Höfn 19. mars
Ég verð með tvo danstíma í Sindrabæ á Höfn í Hornafirði 19. mars.
13:00 Beyoncé
14:15 Burlesque
Einn tími kostar 3900, tveir tímar kosta 6500.
Þú skráir þig í gegnum formið hér að ofan og þú færð kvittun og rukkun í heimabankann innan sólarhrings. Nánar um dansstílana er að finna örlítið neðar á síðunni. Allir tímar miða að byrjendum en eru þannig að fólk með reynslu hefur mjög gaman að þeim.
Athugið að tímarnir henta konum með barn undir belti, ef þær eru ekki með grindargliðnun og eru almennt hraustar.
13:00 BEYONCÉ
Hársveiflur, twerk og almenn skvísulæti í anda poppdrottingarinnar. Upphitun, grunnspor, samhæfing, twerk og fleira. Í lok tímans lærum við dans í anda drottningarinnar.
Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Innanhússíþróttaskór.
Lengd tíma: 70 mínútur
"Það voru ekki liðnar 5 mínútur af fyrsta tímanum þegar ég hóf að dansa sem aldrei fyrr. Þessar fyrstu mínútur voru skemmtilegri en öll fjórtán árin mín í ballet til samans og eftir tímann skokkaði ég sveitt og hamingjusöm heim. Ég bæði lærði að dansa á nýjan hátt og að meta líkama minn. Allt í einu spilaði hamborgararassinn minn lykilhlutverk í danssporum, aldrei hefði ég trúað því."
- Anna Margrét, nemandi
14:15 BURLESQUE
Burlesque er kynþokkafullur kabarettdans sem gengið hefur í endurnýjun lífdaga síðastliðin ár og er Margret frumkvöðull formsins á Íslandi. Gott fyrir sjálfstraustið og líkamann og frelsandi fyrir sálina. Hleyptu þinni innri dívu út í vernduðu umhverfi. Kenndar verða ýmsar samsetningar, spunatækni og brjóstadúskatækni! Eitt par af dúskum fylgir með námskeiðinu.
Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar, dansskór sem fara vel með gólf eða berfættar.
Lengd tíma: 70 mín
Um Margréti
Margrét hefur starfað sem danskennari í 17 ár í Kramhúsinu og er einn vinsælasti kennari hússins. Jákvæð sjálfsmynd og líkamsvirðing eru höfð að leiðarljósi í tímunum þar sem geðrækt er ekki síður mikilvæg en líkamsrækt.
Margrét hlaut Íslensku dansverðlaunin 2014 sem besti danskennarinn. Hún er skemmtilegur kennari sem útskýrir á aðgengilegan hátt og sérhæfir sig í að kenna byrjendum og fólki sem hefur aldrei dansað áður. Hún var sérstakur danskennari þýska handboltalandsliðs karla í upptakti Evrópumeistaramótsins í handbolta 2016. Árið 2018 var hún í danskórnum í Rocky Horror í Borgarleikhúsinu. Margrét hefur farið í fjölda sýningarferðalaga sem burlesquedansmær um Evrópu og Bandaríkin og er fastaskemmtikraftur á hinum goðsagnakennda kabarettstað The Slipper Room í New York.
Margrét hefur einnig starfað í fjölmiðlum og hefur starfað við dagskrárgerð á RÚV, Stöð 2 og starfar nú á Hringbraut.
Umsagnir
"Mér fannst frábært að fá innlit í sögu dansana og tenginguna milli þeirra, hefði ekki vilja missa af neinu í þessari upplifun. Það sem kom mér skemmtilega á óvart var hversu mikil sjálfstyrking, pepp og húmor var í gangi."
"Ég kveið mjög fyrir að mæta, því ég er algjörlega hreyfiheft með öllu, en svo var bara svo gaman!"
"Þetta reyndi á alla þætti likamans; andlega og líkamlega. Ég fór alsæl heim 😍 sæl, þreytt og glöð, og algjörlega tilbúinn að fara á fleiri svona námskeið 😀"
"Mjög skemmtilegt. Fannst álagið alls ekki mikið þegar við vorum að dansa en var samt alveg þreytt eftir þessa 3 tíma. Takk fyrir mig 😃"
"Takk takk þú ert svo dásamleg fyrirmynd."
"Já vil þakka fyrir mig og VÁ hvað Margrét er góður og flottur dansari. Og hvað hún gat látið mig öðlast mikið sjálfstraust með líkamann minn á svona stuttum tíma.TAKK MARGRÉT ERLA SVO MIKIÐ❤"
"Takk fyrir að koma til okkar og komdu sem oftast. Þetta var alveg dásamlegt og nauðsynlegt að hrista aðeins uppí innri dívunni í okkur, nærandi fyrir líkama OG sál <3"
"Ég var rosalega ánægð með tímana og finnst Margrét rosalega blátt áfram, lífleg og góður kennari. Hlakka til að gera meira 🙂"
Algengar spurningar
"ÉG KANN EKKI
AÐ DANSA"
Ég hef engan dansbakgrunn, er með tvo vinstri fætur og er taktlaus.... get ég mætt? Uh, frábært! Ég sérhæfi mig í að kenna fólki eins og þér. Ef allir kynnu að dansa væri ég atvinnulaus. Oftast snýst þetta um samhæfingu og hana er hægt að læra og æfa og feika. Ég kenni ykkur að vinna með það sem þið getið og hafið.
ERU TÍMARNIR
BARA FYRIR KONUR?
Langflest sem mæta eru konur en öll eru velkomin sem taka þátt í tímanum með gleði og það markmið að læra eitthvað.
ALDURS-
TAKMARK
Er aldurstakmark? Börn eru mismunandi eins og þau er mörg. Leiðbeinandi aldurstakmark er 13 ára. Ég tala mikið um grindarbotn, samfarahreyfingar og slíkt, svo þið berið ábyrgð á ykkar barni. Burlesque-ið er þó í grunninn strippdans, svo þar er 18 ára aldurstakmark. Og það er ekkert aldurstakmark í hina áttina!
ÁHORFENDUR
Má ég koma að horfa? Nei - eins og segir í Friends: You dance a dance class. Danstíminn er fyrir þau sem taka þátt. Mjög oft er fólk að stíga út fyrir þægindarammann og það passar ekki að það séu áhorfendur.
LÍKAMLEGT
ÁLAG
Er erfitt að taka tvo tíma í röð? Erfiðleikarnir felast aðallega í einbeitingu. Beyoncé er svitatími og burlesque-ið er rólegt. Þegar ég hef komið með svona dansdag er um það bil helmingur þáttakenda sem taka báða tímana.
Þú þekkir líkamann þinn best og hans mörk. Það er auðvelt í danstíma að taka því rólega eða gefa í sitt á hvað, aðeins stíga til hliðar ef álagið er mikið og vera í rýminu þar sem þér líður best.